Um okkur

Fjölskyldurekið fyrirtæki
Léttvagnar er fjölskyldurekið fyrirtæki, stofnað af okkur bræðrum, Henry og Ólafi, sem erum uppaldir í Vestmannaeyjum og Danmörku.
Frá árinu 2019 höfum við selt vandaða vagna á Evrópumarkaði, þar sem við höfum mætt ólíkum þörfum viðskiptavina og þannig fundið fjölbreyttar lausnir fyrir hvern og einn. Þessi reynsla og þekking sem við höfum aflað okkur er grundvöllur þeirrar starfsemi sem Léttvagnar.is býður upp á í dag.
"Traust og gæði í sölu vagna"
Við sérhæfum okkur í sölu á vönduðum vinnu-, matar-, íbúðar- og skrifstofuvögnum og leggjum mikla áherslu á skýr samskipti, fagleg vinnubrögð og traust í öllum viðskiptum. Markmið okkar er að útvega góða vagna á sanngjörnu verði, sem uppfylla kröfur um gæði og notkun við íslenskar aðstæður.
Við vitum hversu mikilvægt það er að búnaður sé í fullkomnu lagi. Því tryggjum við að allir vagnar sem við seljum séu yfirfarnir, prófaðir og tilbúnir til notkunar á íslenskum markaði.

Aðgangur að vönduðum vögnum þökk sé öflugum tengslum
Sérstaða Léttvagnar.is liggur í víðtæku tengslaneti okkar, sem er meðal annars í Danmörku, þar höfum við byggt upp sterk sambönd við samstarfsaðila og seljendur vagna. Þetta gerir okkur kleift að finna lausnir sem henta ólikum þörfum viðskiptavina á Íslandi.
Allir vagnar eru yfirfarnir áður en þeir eru afhentir. Við leggjum mikla áherslu á gæði í öllu ferlinu frá upphafi til enda.